Gleymt lykilorð á hinni og nenni ekki að bíða eftir emaili...
Ég er greinilega með svona mikla blogg þörf að ég blogga á þessari síðu :)
Ég nefnilega er alltaf að breyta lykilorðinu á hinni síðunni og gleyma hvað það er, þannig að ég ætlaði bara að láta senda mér nýtt lykilorð.. en neiii það kom bara ekkert !
En fréttir af mér eru nú barasta frekar litlar. Er bara búin að vera í fríi í sex daga, byrjaðir reyndar að vinna í gær aftur sem var rosalega fínt en það var rosalega mikið að gera ! En það hafðist.
En ég skrapp í bæinn í fríinu mínu og eyddi þar aldeilis slatta af pening, semer bara hið besta mál. Keypti mér náttúrulega bara það sem mig vantaði ;) Eins og t.d tvö skó pör og svona .. NAUÐSYNLEGT að eiga nóg af skóm :)
En eins og ég sagði, þá hef ég ekkert frá miklu að segja.. Nenni bara ekkert að fara að sofa alveg strax..
En fyrir þá sem áhugasamir eru um mig ;D haha þá verð ég bara að vinna í haust og ætla bara hlaða inn pening á fullu (: Safna og safna og eyða smá inn á milli .. Svo ætla ég að sjá til næsta sumar eða aðeins fyrr, hver peninga staðan mín er þá og þá ætla ég vonandi að sækja um aftur í skóla í Danmörku og fara í þetta sinn:) Leigja mér einhverja kósí íbúð eða eitthvað og læra ljósmyndun og grafíska og Brimdís ætlar örugglega með mér ;) Þannig að það verður bara stuð :)
En núna er ég að hugsa um að fara að sofa þar sem ég þarf að fara að vinna á morgun og aldrei að vita nema maður skelli sér á ball með Buff annað kvöld ! ;)
- Margrét Alda
([.])
Heyrðuu jáá ég er ennþá á lífi ;] Gaman að því..
En allavega þá hef ég ekki mikið að segja.. Nema ég hlakka geðveikt til
þess að fara byrja í skóla aftur..
Ég er semsagt að fara í fjölbraut vesturlands
fyrir ykkur sem vissu það ekki..;]
Og það mun vera geeeðveikt stuð..;]
Og jáá Silja ég er örugglega eftir að koma í heimsókn til þín skoo
& ég ætlast til þess að þú komir nú á Akranes líkaa..
oog við tökum allavega eitt djamm saman;]
En allavega þá ætla ég að fara í háttinn..
Þetta er eitt af því sem ég hata mest !
+
--Gaman að segja frá því að ég er að hlusta á Xfm
& er þá ekki bara lagið "sometimes in the summer"
með NilFisk --
-[;; Margrét Alda.;;]
![]()
:]
___
Ætla að segja hvað ég gerði í London í stuttu máli...
Achh.. Man ekkert hvað við gerðum á hvaða degi...
Við skoðuðum okkur um í London. Fórum t.d í London eye eða Eye of London eða hvað sem þetta heitir.. Sem var mjög fínt :) Við fórum á e-r tvö eða þrjú söfn minnir mig.. Siglingu... Dýragarð... Og margt fleira... Fórum á Oxford street .. Ég verslaði skó par fyrir Jónínu... Sem eru þokkalega mikið hardcore skór.. Bleikir með hauskúpum á... Ekki hægt að vera svalari.. :) Uhmm.. Pabbi splæsti í nýja peysu á mig og nýja Vans skó.. Því ég var búin að labba hina í tætlur .. :) Uhmm.. Ég keypti mér þrjá geisladiska...
Red Hot Chili Peppers - Stadium Arcadium
Placebo - Meds
Snow Patrol - Eyes Open
Annars ekkert annað minnir mig ! Svo er örugglega fullt sem við gerðum en ég man ekki akkurat núna ! Þannig að...
En hérna ég hef ekkert meira að segja !
"Usss...Don't tell anyone your secret, 'Cause then it isn't a secret anymore" :]
Tilkynning ;)
Já !
Já ! Jæja... tími á blogg.. ferðasaga? smá...
Sunnudagur:
Jáámm..lögðum að stað um átt, ég jónína og auður sátum aftast ;) jááá.. Það var næs.. jájájá.. En jáá.. fórum á bakkaflugvöll og biðum þar í klukkutíma eða
e-ð og flugum til Eyja. Fórum að borða og svo út að labba í rokinu
Fórum svo heim... og ég jónína og auður blöðruðum allt kvöldið eða var það ekki þá ? man ekki ! Sofnuðum svo á endanum þegar allir voru farnir niður :D
Mánudagur:
Uhmm.. vöknuðum snemma, fórum í rútuferð eftir matinn.. svo e-ð út að skoða í búðir og svona. Svo í skipsferð. Man ekki meira... Sund og e-ð...
Dísús.. Ég man ekkert hvað við gerðum á hvaða degi maður.... Þannig að bara það sem við gerðum var...
Keila,Bíó,Skipsferð,Rútuferð,Sund,Versla,Rafting... Eitthvað meira? Held ekki !
Uhmm... Held að ég nenni ekki að blogga meira... !
En ég er að fara til London á næsta laugardag ! Vúúúhúúú... ! ;D jáááá... Ég hlakka ógó mikið til ! 






